Skilmálar þjónustu
Seljandi er Partýland, rekið undir kennitölu Partýland ehf., kt. 650723-1980. Kaupendur eru þeir sem skráðir eru fyrir kaupum skv. reikningi. Aðeins þeir sem náð hafa 15 ára aldri mega panta vörur á Partýland. Skilmálarnir geta tekið minniháttar breytingum án fyrirvara.
Partýland veitir upplýsingar um vörur og þjónustu með fyrirvara um innsláttarvillur, verð, myndir, lagerstöðu og bilanir. Ef vara er uppseld þá áskilur Partýland sér rétt til að aflýsa sölu í heild eða að hluta til og endurgreiða upphæðina. Farið er með persónuupplýsingar sem algjört trúnaðarmál og þær einungis nýttar til að ljúka viðkomandi viðskiptum og tryggja góða þjónustu. Viðkvæmar greiðsluupplýsingar fara ávallt í gegnum örugga vefsíðu þar sem notast er við SSL tengingar, slíkar upplýsingar koma aldrei við sögu hjá okkur né vefsíðunni okkar.
Greiðsla
Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga, dulkóðaða kortasíðu með alþjóðlegum stöðlum um öryggi kortaupplýsinga. Einnig bjóðum við upp á millifærslu, reiðufé og fleira.
Verð
Sama verð gildir almennt á netinu og í verslun en afsláttarkóðar gilda aðeins ef pantað er á netinu. Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir geta sótt um sérstök afsláttarkjör ef viðskipti eru mikil og tíð. Verð eru birt með virðisauka. Verð geta breyst án fyrirvara.
Ábyrgð
Partýland veitir tveggja ára neytendaábyrgð til einstaklinga skv. neytendalögum. Fyrir vörur sem ætlaðar eru umtalsvert lengri endingartími en tvö ár framlengis tilkynningarfrestur neytenda í 5 ár. Ábyrgð til fyrirtækja er eitt ár skv. lögum um lausafjárkaup.
Gildir ábyrgð Partýland einungis á vörum sem seldar eru af Partýland. Ef vörur hafa lengri ábyrgðartíma þá er það yfirleitt tekið fram sérstaklega á reikningi. Það hvort vara hefur fimm ára ábyrgð ræðst þó endanlega af ætluðum endingartíma vöru.
Sýna þarf fram á að varan sé keypt af Partýland með framvísun reiknings, færslum á kennitölu eða hægt sé að sýna fram á vörukaup með öðrum óyggjandi hætti. Ábyrgð nær hvorki til eðlilegs slits eða notkunar á rekstrarvörum.
Ábyrgð fellur úr gildi ef utanaðkomandi aðili framkvæmir tilraun til viðgerðar, opnar/rífur innsigli, vara hlítur slæma/ranga meðferð, ef rangur spennubreytir /spennuinngangur eða rangt hleðslutæki er notað við vöruna.
Gögn eru ekki innan ábyrgðar og bendum við viðskiptavinum á að taka afrit af gögnum reglulega. Hugbúnaður sem framleiddur er af þriðja aðila getur falið í sér ágalla sem er yfirleitt lagfærður í uppfærslum þriðja aðila og því er uppsetning og þjónusta á honum eða rétti hans ekki í höndum Partýland enda þarf til þess persónulegar upplýsingar sem ekki er rétt að veita þjónustuaðilum svosem lykilorð og aðgangur að persónuupplýsingum.