Endurgreiðslustefna
Partýland býður upp á 14 daga skilarétt sem felur í sér að viðskiptavinur hefur val um að fá fulla endurgreiðslu eða inneignarnótu í samræmi við kaupverð. Almennur skilaréttur á við þegar þegar vara er keypt með öðrum hætti en við fjarsölu eða samningi utan fastrar starfsstöðvar (sjá neðar um rétt til að falla frá samningi).
Neytandi þarf að sýna fram á að varan hafi verið keypt af Partýland. Neytandi skal vera ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Allar umbúðir og allir fylgihlutir þurfa að vera til staðar.
Starfsfólk Partýland áskilur sér rétt til þess að taka skilagjald ef þörf þykir og þá sér í lagi ef eitthvað af framangreindum skilyrðum er ekki uppfyllt.
Skilarétturinn gildir ekki um vörur sem hægt er að fullnýta á innan við 14 dögum. Hann gildir ekki um sérsniðnar pantanir.
Réttur til að falla frá samningi
Um viðskipti í netverslun Partýland, aðra fjarsölusamninga og um rétt neytenda til að falla frá samningi gilda lög um neytendasamninga nr. 16/2016.
Með samþykki þessara skilmála staðfestir neytandi að hann er upplýstur um rétt sinn til þess að falla frá samningi, þ.e. sá frestur rennur út fjórtán dögum eftir að gengið var frá samningi um kaup á þjónustu eða neytandi tók vöru í sína vörslu. Byrjar fresturinn jafnframt að líða þegar þriðji aðili sem viðskiptavinur tilgreinir tekur vöru í sína vörslu.
Réttur til að falla frá samningi á þó ekki við ef innsigli á innsigluðum vörum hefur verið rofin.
Viðskiptavinur þarf að tilkynna Partýland um ákvörðun sína um að falla frá samningi áður en fresturinn til að falla frá honum rennur út og þarf að tilkynna það í gegnum tölvupóstfangið partyland@partylandid.is eða með annarri rekjanlegri yfirlýsingu, má þar sem dæmi nefna að símtal telst ekki sem ótvíræð rekjanleg yfirlýsing. Neytandi skal vera ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar.
Kaupandi þarf að endursenda eða afhenda vöruna til Partýland án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir daginn sem kaupandi tilkynnir okkur ákvörðun sína um að falla frá vörukaupunum. Frestur til að tilkynna um að viðskiptavinur falli frá samningi telst virtur ef vara er sannanlega endursend fyrir lok 14 daga tímabilsins. Kaupandi ber beinan kostnað af endursendingu vörunnar. Staðlað eyðublað með yfirlýsingu um að fallið sé frá samningi.
(fylltu út og sendu þessa yfirlýsingu ef þú óskar eftir að falla frá samningnum)
‒ Til (hér skal setja inn nafn seljandans, heimilisfang og, ef hægt er, bréfasímanúmer og netfang):
‒ Ég/Við (*) tilkynni/tilkynnum (*) hér með að ég/við (*) óska/óskum (*) eftir að falla frá samningi mínum/okkar (*) um sölu á eftirfarandi vöru (*)/um veitingu eftirfarandi þjónustu (*)
‒ Sem voru pantaðar hinn (*)/mótteknar hinn (*)
‒ Nafn neytanda/neytenda
‒ Heimilisfang neytanda/neytenda
‒ Undirritun neytanda/neytenda (einungis ef þetta eyðublað er á pappírsformi)
‒ Dagsetning
(*) Eyðið eftir því sem við á